Flashback

Ég talaði um í bloggi um daginn að svona blogg væru nokkurskonar dagbók, upprifjun á merkilegum sem ómerkilegum atvikum sem maður gleymir annars. Ég var að gamni mínu að lesa nokkrar færslur í morgun og gat ekki annað en hlegið þegar ég rifjaði upp þegar ég steig út úr bíl mínum við Bónus og steig ofan í pylsu með öllu!!! ósnerta!!! í brauði!!! já hverjar eru líkurnar? hvað var hún að gera þar? eða þegar við Sonja lentum í umferðaröngþveiti þar sem einstaklingur á scooter var á miklubrautinni í rólegheitunum... já það að blogga hefur marga kosti!

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Hí hí............hef hugsað mér í dauðatímanum í okt að hreinlega prenta út alla þessa vitleysu..til að geta hlegið dátt að í ellinni........kannski er það samt ekki svo góð hugmynd að prenta út því örugglega verða öll elliheimili orðin þráðlaus eftir 40 ár. Nema náttl ef global warming verði búið að breyta öllum heiminum fyrir þann tíma........40 ár!!!

Sonja (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 20:24

2 identicon

Hæhæ, bara að kvitta fyrir innlitið :O)

Kær kveðja, Rúna.

Rúna (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 10:04

3 identicon

Rosa líst mér vel á að þú sért farin að blogga aftur vinkona :) það á eftir að stytta manni stundirnar milli mjalta

Bergþóra (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 11:19

4 identicon

Haha fyndið pylsuatriði.. Takk fyrir fréttir af tvíbbum, gaman að öllum þessum gullmolum.

Kristín van de Netherlands (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband