31.8.2008 | 23:00
Again
Já ástæða þess að ég byrja að blogga örlítið aftur er að þegar svona einhver eins og ég er heima allan daginn, (þó ég vilji taka það fram að ég hafi nóg að gera) þá er svo skemmtilegt að grípa í tölvuna og lesa blogg eftir virka bloggara... eitthvað er nú farið að hellast úr lestinni á þeim hring sem ég fer vanalega og vona ég að einhverjir vilji feta í mín fótspor og byrja á þessu á ný. Ég hef líka verið from time to time að kíkja á gömul blogg þar sem ég hef bloggað með mislöngum hléum frá italyidjublogginu í HA 2003 og þetta er ansi góð dagbók. Gaman að lesa hvað ég hef haft fyrir stafni því það er ansi fljótt að gleymast þó að sumt sé bull og annað vitleysa en líka smá fróðleikur og örlítil viska á stökustað;) hehe Ef einhverjir kíkja ennþá hingað inn bið ég hinn sama að kvitta hið snarasta! ja þú mátt alveg klára að lesa pistilinn.. en kvittaðu svo! :)
Haust! Já haustið að læðast að okkur enn eina ferðina;) en gott mál! ég held að haustið sé uppáhaldsárstíðin mín. Góð ástæða til að kveikja á kertum, seríum og lömpum og hafa það sem huggulegast;) Samt oftar en ekki fínasta veður á daginn og mjög gaman að rölta um t.d Kjarnaskóg eins og við gerðum í dag ég og mágsurnar tvær plús börn. Alveg er þetta paradís að hafa Kjarnaskóg svona stutt frá bænum. Stelpurnar gátu leikið sér í leiktækjunum og svo voru kanínur þarna skoppandi í kringum okkur, ó já bara ljúft... bara ljúft.
Akureyrarvaka að baki, hún fór nú að einhverju leyti framhjá mér, fór þó í gönguferð um miðbæinn, sá t.d listasýningu sem á að gerast neðansjávar. Mjög flott þæfð ígulker eða eitthvað svoleiðis. Ég sá líka viðtal við listakonuna á N4 og hún hvatti fólk til að setjast á gólfið og virða fyrirbærin fyrir sér, einnig var hægt að leggjast á gólfið til að komast í enn betri stemmingu, ég þarf vart að taka það fram að ég lagðist hvorki né settist á gólfið né nokkur sem ég sá. Það er nú fullmikil innlifun fyrir hinn meðalakureyring að ég held;) En skemmtileg stemming á akureyrarvöku og mikil þátttaka bæjarbúa;)
Fyrir þá sem ekki vita er mikil vinna að vera með tveggja mánaða stelpu og aðra 20 mánaða;) mikil vinna en mikið fjör og ómetanleg ánægja;) Af þessum sökum gefst ekki mikill Stínutími, því að í stuttu máli þarf ég nauðsynlega á extreme makeover! ég er hvít sem kríuskítur (ekki eins og gott sumar sé að verða búið), þarf að komast í plokkun og litun og hárið á mér er ÖMURLEGT! Plús það að öll fötin mín eru bara boring og ekki einu sinni í tísku að ég held....;) hvað er í tísku? þarf aðins að komast í einhverja stórborgina og versla.... og versla meira... Skrýtið að eftir að ég átti stelpurnar hef ég meira skoðað barnaföt en föt á mig... (don´t get my wrong ég elska að skoða barnaföt) en einhvern tíman fer ég og versla á mig frá toppi til táar;) new look! annars verð ég bara í gömlu lufsunum þangað til, ég er hvort sem er með ælubletti á öxlunum og skyr á skálmunum hehe.... Ég og Dagný mágkona erum byrjaðar í mömmuleikfimi sem er fínasta fyrirbæri, bæði fyrir óléttar konur og konur með lítil börn;) bara gaman að komast út úr húsi og hitta aðrar mömmur og hreyfa sig smávegis;) manni líður svo assgoti vel á eftir... Við erum reyndar dugleg að fara út að ganga með Hönnu Marín og Elísu Hildu þannig að það hlýtur að skila sér eitthvað líka;)
Læt þessa langloku duga í bili... vona að ég eigi einhverja lesendur eftir
yfir og út...
Stínan
Athugasemdir
VVVVVVVVVííííí...........Stínan er mætt aftur. Frábært hjá þér að taka upp þráðinn ........já við toppum kannski ekki iðjublogggið með frumlegheitum.......enda var það fyrirbæri barn síns tíma.....en ég er finn hvað ég er búin að sakna þess að heyra ekki um dagleg líf vina minna, svo endilega haltu áfram ;) svona á milli alls þess sem þú þarft að gera. Hehehhe , já kertaljós og huggulegheit er eitthvað sem ég tengi við þig .....og frábært að heyra af leikfiminni. Þú getur alveg bókað mig í verlsunarleiðangur hvort sem er fyrir þig, börnin eða einhvern annan....hefði nú bara gaman af því þótt það vanti kannski eina HogM búð eða gap...svona fyrir basic flíkur. Jæja mín kæra, hlakka til að lesa næstu færslu ;)
Sonjan (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 07:35
jibbbbý jei..... það gladdi svo sannarlega mitt litla hjarta að sjá nýtt blogg
vissiru að Sandra Rún er búin að eignast stelpuskottu??
kv Guðbjörg og Unnur Lilja
Guðbjörg G (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 10:19
Stina nr 1, stina nr 2 stina nr 1234567 OK veit thetta er gamall brandari en eg er svo sad ad mer finnst hann alltaf fyndinn. Mikid var eg glod ad lesa frettir fra henni uppahalds Stinu minni. Hafdu thad gottxx
Stina on the other side (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 20:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.