Halló!

Jæja... tilraun .. númmer jégveitekkihvað... til að byrja að blogga;) ég fæ alltaf þessa löngun from time to time og þá er ekkert meira hvetjandi en að finna sér nýjan vettvang með nýjum möguleikum;) Já svo here goes;)

Það er merkilega margt sem hægt er að blogga um á þessum veraldarvef... sumir hafa kosið að finna að hinu og þessu... eða eiginlega nota þennan vettvang til að koma einstaka pirring á framfæri og er það í góðu lagi mín vegna... Einnig er hægt að hrósa góðu hlutunum sem eru að gerast allt í kringum okkur allan heila daginn ef við skoðum vel;) Dagurinn í dag er til dæmis búin að vera mjög góður... í fyrsta lagi er laugardagur sem er alltaf frábært;) Við vorum boðin í kaffiboð til Sonjunnar í dag og hittum góða vini og hún Hanna mín svaf í heila átta tíma síðastliðna nótt;) Ég bið ekki um meira ... alveg hreint frábært;)

Við vorum að keyra í dag og sáum svo krúttlega sjón, eldri kona var úti að labba með hundinn sinn og hann var í prjónapeysu... Ég er þá ekki að meina þessa litlu hunda sem þurfa að vera í einhverju fatakyns vegna kulda heldur bara nokkuð stórann og loðinn hund sem var í þessari fínu útprjónuðu peysu, gamla var svo sátt með hundinn og þetta var með því krúttlegasta sem ég hef séð;)

Fyrir þá sem ekki vita þá erum við að flytja til Akureyrar næsta miðvikudag... og pökkun er í fullum gangi... ótrúlegt hvað ég held í suma hluti, gömul bréf, myndir, kort .... og alltaf þegar ég flyt fell ég í þá gryfju að fara að lesa þetta allt og skoða myndir... sem gerir það að verkum að ég er helmingi lengur en ég þyrfti að vera að pakka þessu dóti mínu;) En það er gaman að þessu og merkilegt hvað mar nær að sanka að sér;) En pökkun er svosem í lagi ef við þyrftum ekki að þrífa.... vá hvað mér leiðist að þrífa:( sem er kannski skýring á því að við þurfum að þrífa extra vel núna.. Eitthvað sem kannski þyrfti ekki ef við hefðum gert þetta jafnt og þétt.... EEEnn...

Er að prófa mig áfram og að ætla að reyna að setja inn mynd;) Eina af Hönnu minni 

fleiri myndir frá ak 021


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæbs, til hamingju með nýju síðuna þína

Ég kannast við þetta þegar maður er að taka til eða pakka hehe, um daginn var ég að taka til í fataskápnum mínum og henda en ég þurfti samt að máta heilan helling áður en ég henti því svona til að vera viss um að ég notaði fötin ekki meir.  Jæja hafið það nú gott og gangi ykkur vel í flutningunum

Kv. Harpa Kriss

Harpa Kriss (IP-tala skráð) 24.3.2007 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband