4.9.2008 | 12:12
Flashback
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.9.2008 | 12:07
Tveir rauðhærðir prinsar
Jæja Bebba og Gunnar komin með tvo litla prinsa;) innilega til hamingju og mikið er ég spennt að sjá þá! þetta er náttla ómögulegt að við Bergþóra höfum nú nokkuð vel fylgst að síðustu ár og nú erum við báðar búnar að eiga börn sem hin hefur ekki séð! þetta náttla gengur ekki! en þangað til er internetið skárra en ekkert og ég hlakka til að sjá myndir af sætu strákunum sem eru víst líkir systur sinni!
je je
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2008 | 22:33
Munkaþverárstræti
Ég bý við Munkaþverárstræti... sem er gott og blessað... en var að velta fyrir mér nafninu á götunni... Dáldið langt og skrýtið nafn, ómögulegt fyrir útlendinga að bera fram. Hver ætli hafi fattað upp á því? Gæti verið þar sem gatan liggur þvert á Glerá... en hvaðan koma Munkarnir inn í dæmið? bjuggu hér munkar? Langaði þann sem skýrði götuna að verða munkur?...
Ef ég gúgla Munkaþverárstræti eins og maður gerir við flest allt nú til dags koma upp 1180 svör... meðal annars einhver sem er skráður til heimilis að Múnkaþverárstræti já með úi og er á móti álveri í Eyjafirði.. hann vill víst fjölbreyttara atvinnulíf í staðinn... jahá allt og ekkert stendur í tölvuheimi
já merkilegt og jafnframt ómerkileg pæling
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.9.2008 | 22:00
Stína viðutan
Ef einhver er í brjóstaþoku og móki þá er að ég! Gott dæmi er eftirfarandi saga... Kristín ætlaði með pakka á umferðarmiðstöðina... fór niður í bæ... ekki með pakkann! fór heim og náði í pakkann, fór næstum inn á pósthúsið... nei heyrðu ég ætlaði á umferðarmiðstöðina... bíddu hvar er hún?... hmmm (bara á sama stað og hún hefur alltaf verið og borin og barnfæddur akureyringur ætti að vita) mér til afsökunar fannst mér ég endilega hafa heyrt að hún hefði verið flutt... en gat nú ómögulega munað hvert;) en fann hana svo á sínum gamla stað! en viti svo menn rútan fór ekki á Reyðarfjörð þangað sem pakkinn átti að fara... Mér var bent að fara á Flytjanda... já ok... gott mál.... en bíddu við!!! hvar er aftur Flytjandi???... ekki eins og það sé málað með risa stöfum á húsið við Pollinn og Vélsmiðjuna og þar nálægt... nei rúntaði um allan bæ en fann það svo... Allt er gott sem endar vel og pakkinn er á leið á austfirðina... hjúkk...jæja smá langloka (dáldið ómerkileg þegar ég les það yfir aftur en what the hey!) til að sýna fram á að gleymska og utanviðsigháttur virðist einkenna mig MEIRA en vanalega þessa dagana. Það er ekkert grín að koma sér út úr húsi með tvær litlar stelpur og finna til allt sem þarf að taka með... Sérstaklega ef tekið er tillit til þess að önnur stelpan gerir í því að fara með skóna sína um alla íbúð, tekur föt systur sinnar og reynir að klæða sig í þau (sem er bara krúttlegt) en þetta gerir mér ekki auðveldara um vik... þar sem ég er skorpumanneskja mikil... eins og ég hef áður sagt og laga ekki til um leið og einhver hlutur er ekki á sínu stað... hmmm já og ekki orð um það meir;) hehe
Jæja best að fara að gefa brjóst og athuga hvort þokunni létti...
þar til næst
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2008 | 23:00
Again
Já ástæða þess að ég byrja að blogga örlítið aftur er að þegar svona einhver eins og ég er heima allan daginn, (þó ég vilji taka það fram að ég hafi nóg að gera) þá er svo skemmtilegt að grípa í tölvuna og lesa blogg eftir virka bloggara... eitthvað er nú farið að hellast úr lestinni á þeim hring sem ég fer vanalega og vona ég að einhverjir vilji feta í mín fótspor og byrja á þessu á ný. Ég hef líka verið from time to time að kíkja á gömul blogg þar sem ég hef bloggað með mislöngum hléum frá italyidjublogginu í HA 2003 og þetta er ansi góð dagbók. Gaman að lesa hvað ég hef haft fyrir stafni því það er ansi fljótt að gleymast þó að sumt sé bull og annað vitleysa en líka smá fróðleikur og örlítil viska á stökustað;) hehe Ef einhverjir kíkja ennþá hingað inn bið ég hinn sama að kvitta hið snarasta! ja þú mátt alveg klára að lesa pistilinn.. en kvittaðu svo! :)
Haust! Já haustið að læðast að okkur enn eina ferðina;) en gott mál! ég held að haustið sé uppáhaldsárstíðin mín. Góð ástæða til að kveikja á kertum, seríum og lömpum og hafa það sem huggulegast;) Samt oftar en ekki fínasta veður á daginn og mjög gaman að rölta um t.d Kjarnaskóg eins og við gerðum í dag ég og mágsurnar tvær plús börn. Alveg er þetta paradís að hafa Kjarnaskóg svona stutt frá bænum. Stelpurnar gátu leikið sér í leiktækjunum og svo voru kanínur þarna skoppandi í kringum okkur, ó já bara ljúft... bara ljúft.
Akureyrarvaka að baki, hún fór nú að einhverju leyti framhjá mér, fór þó í gönguferð um miðbæinn, sá t.d listasýningu sem á að gerast neðansjávar. Mjög flott þæfð ígulker eða eitthvað svoleiðis. Ég sá líka viðtal við listakonuna á N4 og hún hvatti fólk til að setjast á gólfið og virða fyrirbærin fyrir sér, einnig var hægt að leggjast á gólfið til að komast í enn betri stemmingu, ég þarf vart að taka það fram að ég lagðist hvorki né settist á gólfið né nokkur sem ég sá. Það er nú fullmikil innlifun fyrir hinn meðalakureyring að ég held;) En skemmtileg stemming á akureyrarvöku og mikil þátttaka bæjarbúa;)
Fyrir þá sem ekki vita er mikil vinna að vera með tveggja mánaða stelpu og aðra 20 mánaða;) mikil vinna en mikið fjör og ómetanleg ánægja;) Af þessum sökum gefst ekki mikill Stínutími, því að í stuttu máli þarf ég nauðsynlega á extreme makeover! ég er hvít sem kríuskítur (ekki eins og gott sumar sé að verða búið), þarf að komast í plokkun og litun og hárið á mér er ÖMURLEGT! Plús það að öll fötin mín eru bara boring og ekki einu sinni í tísku að ég held....;) hvað er í tísku? þarf aðins að komast í einhverja stórborgina og versla.... og versla meira... Skrýtið að eftir að ég átti stelpurnar hef ég meira skoðað barnaföt en föt á mig... (don´t get my wrong ég elska að skoða barnaföt) en einhvern tíman fer ég og versla á mig frá toppi til táar;) new look! annars verð ég bara í gömlu lufsunum þangað til, ég er hvort sem er með ælubletti á öxlunum og skyr á skálmunum hehe.... Ég og Dagný mágkona erum byrjaðar í mömmuleikfimi sem er fínasta fyrirbæri, bæði fyrir óléttar konur og konur með lítil börn;) bara gaman að komast út úr húsi og hitta aðrar mömmur og hreyfa sig smávegis;) manni líður svo assgoti vel á eftir... Við erum reyndar dugleg að fara út að ganga með Hönnu Marín og Elísu Hildu þannig að það hlýtur að skila sér eitthvað líka;)
Læt þessa langloku duga í bili... vona að ég eigi einhverja lesendur eftir
yfir og út...
Stínan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.3.2007 | 00:08
Nokkrar myndir
Mér finnst þetta bara krúttleg mynd;)
Fórum rúnt um Reykjanesið og sáum Wilson Muuga á strandstað í mögnuðu veðri
Ein af okkur mæðgum;) veit bara ekki alveg hvernig ég á að snúa henni;)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.3.2007 | 23:00
Halló!
Jæja... tilraun .. númmer jégveitekkihvað... til að byrja að blogga;) ég fæ alltaf þessa löngun from time to time og þá er ekkert meira hvetjandi en að finna sér nýjan vettvang með nýjum möguleikum;) Já svo here goes;)
Það er merkilega margt sem hægt er að blogga um á þessum veraldarvef... sumir hafa kosið að finna að hinu og þessu... eða eiginlega nota þennan vettvang til að koma einstaka pirring á framfæri og er það í góðu lagi mín vegna... Einnig er hægt að hrósa góðu hlutunum sem eru að gerast allt í kringum okkur allan heila daginn ef við skoðum vel;) Dagurinn í dag er til dæmis búin að vera mjög góður... í fyrsta lagi er laugardagur sem er alltaf frábært;) Við vorum boðin í kaffiboð til Sonjunnar í dag og hittum góða vini og hún Hanna mín svaf í heila átta tíma síðastliðna nótt;) Ég bið ekki um meira ... alveg hreint frábært;)
Við vorum að keyra í dag og sáum svo krúttlega sjón, eldri kona var úti að labba með hundinn sinn og hann var í prjónapeysu... Ég er þá ekki að meina þessa litlu hunda sem þurfa að vera í einhverju fatakyns vegna kulda heldur bara nokkuð stórann og loðinn hund sem var í þessari fínu útprjónuðu peysu, gamla var svo sátt með hundinn og þetta var með því krúttlegasta sem ég hef séð;)
Fyrir þá sem ekki vita þá erum við að flytja til Akureyrar næsta miðvikudag... og pökkun er í fullum gangi... ótrúlegt hvað ég held í suma hluti, gömul bréf, myndir, kort .... og alltaf þegar ég flyt fell ég í þá gryfju að fara að lesa þetta allt og skoða myndir... sem gerir það að verkum að ég er helmingi lengur en ég þyrfti að vera að pakka þessu dóti mínu;) En það er gaman að þessu og merkilegt hvað mar nær að sanka að sér;) En pökkun er svosem í lagi ef við þyrftum ekki að þrífa.... vá hvað mér leiðist að þrífa:( sem er kannski skýring á því að við þurfum að þrífa extra vel núna.. Eitthvað sem kannski þyrfti ekki ef við hefðum gert þetta jafnt og þétt.... EEEnn...
Er að prófa mig áfram og að ætla að reyna að setja inn mynd;) Eina af Hönnu minni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)